Sólkerfið |
NASA |
Í sólkerfinu okkar eru átta reikistjörnur. Þær heita Merkúríus, Venus, Jörðin, Mars, Júpíter, Satúrnus, Úranus og Neptúnus. Þær ganga allar umhverfis sólina á eigin sporbaug. Þær skiptast í innri og ytri reikistjörnur.
Talið er að sólkerfið hafi orðið til fyrir um það bil 4.600 milljón árum. Fyrir það var bara risavaxið ský úr gasi og ryki sem við köllum geimþoku. Síðan byrjaði hún á einhvern hátt að falla saman og þéttast. Gasið og rykið féll í áttina að miðjunni þar sem mesti þyngdarkrafturinn var. Þá byrjaði skýið að snúast í kringum miðjuna og fletjast út og varð eins og pönnukaka í laginu. Síðan mynduðust litlir efnisklumpar umhverfis miðjuna sem urðu síðan að reikistjörnum, smástirnum, tunglum og halastjörnum. |
Skammstöfunin NASA stendur fyrir National Aeronautics and Space Administration. Nasa er Bandarísk geimvísindastofnun sem var stofnuð árið 1958. NASA ætlar sér að ná nýjum hæðum og sýna hið óþekkta í þágu mannkyns. Til að ná þessum árangri eru þúsundir manna að vinna yfir alla Jörð og útí heim.
|