Rannsóknir í heiminum
Þann 30. nóvember árið 1609 steig Ítali nokkur út á akra í grennd við heimili sitt í Padúa. Í fórum hans var glæný hollensk uppfinning sem hafði þann eiginleika að stækka fjarlæg fyrirbæri svo þau sýndust nær. Ítalinn ákvað að prófa það sem fáir, jafnvel engir aðrir, höfðu prófað: Að beina sjónauka í átt að tunglinu, reikistjörnunum og fastastjörnur. Á einu augabragði gerbreyttist stjörnufræðin og heimsmyndin um leið. Hann vissi það ef til vill ekki þá en þessa afdrifaríku nótt hratt Galíleó Galílei af stað vísindabyltingu. Til þess að minnast þessa atburðar útnefndu Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðasamband stjarnfræðinga árið 2009 Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar.